Íslenskur auðkýfingur- sönn saga...
24.6.2009 | 20:32
Það var einu sinni maður sem bjó á Íslandi. Hann vissi varla aura sinna tal og var því duglegur að kaupa upp heilu jarðirnar og einnig þær sem lágu við hliðina, bara svo hann fengi frið fyrir fjósalyktinni af öðrum bæjum.
Eitt sinn fór hann í einkaþotu sinni og flaug yfir heiminn. Með honum var maður sem langaði til þess að fá smá skerf af auðæfum hans og sýndi honum því fallegt land úr lofti sem íslenska manninum bauðst að kaupa. Íslenski maðurinn varð rosalega ánægður- svo ánægður að hann hugsaði ekkert út í það að kanna landið eitthvað frekar. Hann dýfði ofan í vasana og borgaði manninum. Síðar kom í ljós að landið sem maðurinn keypti, var mýri, og landið sem hann sá úr lofti, var eitthvað allt annað. Hann hafði því eytt peningum sínum í einskis nýtt land.
Þetta gerðist árið 2007...

kermit
matar
ollana
asmundur
zeriaph
himmalingur
icejedi
bidda
ragnar73
sigro
Athugasemdir
góð saga - eitthvað svo 2007
Sigrún Óskars, 24.6.2009 kl. 21:30
Mig langar svooooo að vita hver þetta er.
Forvitna systir þín
Greta (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 22:40
Ég held að ég viti hver þetta er hehehe er það ekki???
Erla (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.