Ferð í Bónus

Ég stóð í Bónus og skoðaði Pússl. Þau voru nefnilega svo "ódýr". Ég tók eitt úr rekkanum og hrundu þá pússlin úr hillunni á mig. Það var greinilega einhver að segja mér að kaupa þau ekki. Maður stóð rétt hjá mér og brosti út í annað þegar pússlin héldu áfram að hrynja á hausinn á mér. Ég gekk frá þeim og hélt áfram að versla. Þegar ég svo hafði skellt tveimur pokum af mat í skottið, byrjaði ég að bakka út, þá stóð þessi maður og benti fyrir aftan bílinn. Ég snarhemlaði, litlu mátti muna að ég hefði keyrt á bíl sem var að bakka út úr stæði sínu á sama tíma. Hann hefur örugglega haldið að ég væri hrakfallabálkur- sem er svosem rétt...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband