Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Gleðikonur og fjárhættuspil

Íslenskur auðkýfingur horfði á sig í spegli og hugsaði: "mikið djöfull er ég flottur". Hann horfði á vasana túttna út þar sem þeir fylltust af peningum. Velmegunarístran var komin í ljós, enda erfitt að halda sér í formi þegar maður borðar kræsingar í morgunmat, hádegismat og kvöldmat.

Þessi Íslendingur fékk gott tilboð alla leið frá Ameríku, að koma og skoða glæsilegt fjárfestingatækifæri. Hann pakkaði jakkafötum ofan í tösku, hringdi á einkaflugmanninn og sagði honum að vera tilbúinn við vélina eftir hálftíma. Hann hringdi nokkur símtöl, settist upp í glæsibifreið sína og hélt út á Reykjavíkurflugvöll.

Í Ameríku biðu þeir eftir honum með kampavín og glæsilega limósínu. Hann hafði alltaf langað í limósínu en það passaði ekki alveg inn í Ísland. Ameríkanarnir sýndu manninum allt- keyrðu að vísu hratt framhjá verðandi fjárfestingu og sýndu honum nokkrar tölur á blað í flýti. Þeir keyrðu með hann á glæsihótel, flottasta hótelið í bænum. Þeir borguðu allt saman með US Dollars. Um kvöldið var íslenska manninum boðið í glæsilegan dinner, boðið að spila fjárhættuspil og síðan voru honum boðnar sætar konur í boði hússins. Hann átti erfitt með að velja, hann gat valið sér tvær eða ljóshærðar, dökkhærðar- úúúú... þetta var allt svo spennandi !!

Daginn eftir vaknaði íslenski maðurinn og hugsaði með sér að þetta hlyti að vera góð fjárfesting, það var greinilegt að þessir Ameríkanar vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera.

Hann lét "glepjast" og gaf mönnunum peninga, peninga sem hurfu og sáust aldrei aftur.

Þetta gerðist árið 2006...


Goðið mitt...

Þegar ég var 11 ára var Michael Jackson goðið mitt. Ég dýrkaði hann og dáði og átti hann eftir að setja mark sitt á líf mitt til frambúðar. Ég klippti út myndir úr Bravo blöðum og bara allar myndir sem ég fann. Þær geymdi ég í Michael Jackson möppunni minni. Uppáhalds afmælisgjöf mín kom svo frá frænda mínum í Danmörku. Hann hafði hitt naglann á höfuðið og gaf mér Bad pússluspil. Einnig fékk ég rosalega flott MJ hálsmen sem ég bar í marga mánuði. Mig dreymdi um að komast á búgarðinn hans, Neverland- hitta apann hans og fara á tónleika. Ég keypti mér bók um hann og klóraði mig fram úr enskunni bara til þess að fá að kynnast honum betur.

Í gær þegar ég frétti það að hann væri látinn, fékk ég vægt áfall. Ég varð dofin og fékk tár í augun. Eiginmaður minn stóð fyrir framan mig og hló að mér að ég skyldi gráta yfir manni sem ég þekkti ekki. Hann skilur þetta ekki, því Michael Jackson var ekki goðið hans.

Þegar MJ tilkynnti að hann myndi halda tónleika í London á þessu ári, greip um mig þrá um að fara á tónleikana. Ég átti bara engan pening þar sem ég var orðin atvinnulaus og ákvað með trega að sleppa því. Nú hef ég aldrei möguleika á að fara á slíka tónleika.

Ég veit að Michael Jackson breyttist með árunum og varð ekki sá sem hann var fyrir 20 árum síðan. Hann hefur átt erfiða ævi haldinn sýklahræðslu og hræddur við dauðann. Hann lifði aldrei eðlilegu lífi. Hann gat aldrei gengið óséður úti á götu og þurfti að loka heilu dýragörðunum fyrir hann svo hann gæti fengið að vera í friði.

Ég vildi bara fá að skrifa nokkur orð um þennan tónlistarsnilling. Ég ætla að minnast hans eins og hann var fyrir 20 árum síðan.


Bíótilboð fyrir atvinnulausa!!

Sambíóin bjóða nú nýjan tilboðsflokk, en frá og með 24. júní býðst fólki sem er án atvinnu að fara í bíó fyrir 750 krónur. Tilboðið gildir allan daginn, alla daga, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í tilkynningu frá Samfilm segir jafnfram: „Það er okkar von að þetta alltof stóra atvinnuleysi verði eingöngu hér til skamms tíma og að til langs tíma muni einungis fáir nýta sér kostinn. Þangað til að meiri ró skapast í atvinnumálum vonumst við til að sem flestir lyfti sér upp og skelli sér í bíó [...]"

Til að nýta sér tilboðið þurfa atvinnulausir að sýna gögn frá Vinnumálastofnun

(tekið af Visir.is)


Íslenskur auðkýfingur- sönn saga...

Það var einu sinni maður sem bjó á Íslandi. Hann vissi varla aura sinna tal og var því duglegur að kaupa upp heilu jarðirnar og einnig þær sem lágu við hliðina, bara svo hann fengi frið fyrir fjósalyktinni af öðrum bæjum.

Eitt sinn fór hann í einkaþotu sinni og flaug yfir heiminn. Með honum var maður sem langaði til þess að fá smá skerf af auðæfum hans og sýndi honum því fallegt land úr lofti sem íslenska manninum bauðst að kaupa. Íslenski maðurinn varð rosalega ánægður- svo ánægður að hann hugsaði ekkert út í það að kanna landið eitthvað frekar. Hann dýfði ofan í vasana og borgaði manninum. Síðar kom í ljós að landið sem maðurinn keypti, var mýri, og landið sem hann sá úr lofti, var eitthvað allt annað. Hann hafði því eytt peningum sínum í einskis nýtt land.

Þetta gerðist árið 2007...


Hefði getað dáið...

Ég er ein af þeim sem finnst gaman að fikta í alls kyns hlutum þegar ég er að tala í símann. Ég stóð frammi á gangi í nýju vinnunni minni og talaði í símann á meðan ég horfði út á sjóinn og þreifaði á handriðinu sem þar var. Ég veit ekki hvað gerðist en ég rak augun í tvær snúrur sem héngu út um vegginn og fór þangað sem þær voru. Önnur var blá, hin var rauð. Ég tók lauslega utan um þær og púff!!! Stærðarinnar eldblossi birti upp ganginn. Ég kastaðist aftur á bak, leit á hendina og þar voru 4 svartir blettir. Núna líður mér eins og ég sé með rafmagn í puttanum en ég held að ég sé í lagi...

Ef ég hefði dáið (kannski ekki miklar líkur), þá hefði fyrirsögnin verið: Ung kona lést úr rafstraumi þegar hún var að fitla við tvær rafmagnssnúrur á meðan hún var að tala í símann....


Að giftast fyrir peninga

"þetta er allt í lagi elskan mín, peningar eru ekki allt", sagði konan á sama tíma og hún hughreysti niðurbrotinn manninn sinn. Hann var farinn að eldast hratt, eftir mjaðmagerðina í fyrra hafði hann elst um 10 ár. Hann hafði ávallt haft mikið á milli handanna, fjárfest skynsamlega og heiðarlega.

Svo kynntist hann henni. Konunni með fallega ljósa hárið og hinn fullkomna kropp. þau kynntust í einum af viðskiptaferðum hans til meginlandsins. Hún var flugfreyja. Hann sýndi henni heiminn og ferðuðust þau um á einkaþotunni sem hún vildi endilega að hann keypti. Hann elskaði hana og veitti henni það sem hún vildi, hann keypti demanta og föt, keypti draumahúsið og draumabílinn. Hún var hamingjusöm og honum tókst að gera hana það. Innst inni velti hann því fyrir sér hvernig svo ung stúlka gæti fallið fyrir sköllóttum gömlum skarfi eins og honum.

Hún vissi strax hver hann var. Hann hafði flogið með henni nokkrum sinnum og hafði hún spurst fyrir um hann. Hann var að vísu það gamall að hann gæti næstum verið afi hennar, en hvað um það- hann gæti veitt henni meira en þessir ungu kotrosknu strákar á hennar aldri. Hún elskaði að vera umkringd fallegum hlutum og hélt hún í þá hugsun þegar hún ákvað að kynnast honum betur. Hvað um það þótt hann væri gamall? Það væri svo margt annað sem myndi vega það upp.

3 árum og einni mjaðmaaðgerð síðar, skall kreppan á. Einkaþotan, húsið og bílarnir.. Allt hvarf eins fljótt og það hafði komið. Hún horfði á demantshringinn sem þau höfðu keypt í einni af ferðum sínum til Dubai. Hún leit á manninn sinn, sköllóttan með göngugrind og bumbu og hugsaði með sér að peningar væru kannski ekki allt.


Good Morning America

Fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá þáttinn sem var sýndur í morgun í Good Morning America, þá er linkurinn hér :)

http://abcnews.go.com/Video/playerIndex?id=7891529


Fréttir í USA

Það birtist þáttur um Ísland á http://abcnews.go.com/Video/playerIndex?id=7886943 í gær um Ísland. Það er mjög merkilegt að lesa commentin sem Bandaríkjamennirnir skrifa, flestir hafa góða reynslu af Íslandi, aðrir tala frekar illa um okkur Íslendingana. Í framhaldi af fréttinni, verður sýndur þáttur í kvöld á ABC, það verður fræðandi að sjá hvaða mynd þeir draga upp af Íslandi.


vúhúúú....

Eins og ég hef áður sagt, þá verðum við bara flottasta þjóð í heimi eftir þessa kreppu, höfum nægan tíma til líkamsræktar og hættum að hafa efni á sælgæti, mohohoho.... Ég vona alla vega að það eigi eftir að hafa góð áhrif á mig að þurfa að skera niður í þessum óþarfa "fæðuflokki"...

 


mbl.is Skattur á kex og gos í 24,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að meiða sig á GSM síma?

Svarið er já, að minnsta kosti er ég að drepast í fætinum eftir einn slíkan. Ég skellti símanum í hleðslu, sneri mér við og flækti fótinn í snúrunni með þeim afleiðingum að síminn skaust í vitlausa beinið á ökklanum. Núna er ég haltrandi og alveg að drepast. Ég er meira að segja að spá í hvort ég hafi nokkuð kúlubrotnað - er það hægt? Það er greinilegt að hættur leynast alls staðar! Ég veit ekki hvort þetta séu örlög þar sem ég var á leiðinni í ræktina, einhver er kannski að reyna að segja mér eitthvað. úfff......

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband