ferðin á ströndina
29.1.2009 | 11:28
Ég horfi út á hafið og finn sjávarilminn. Ég leggst á sandinn, ber sólarvörn á skjannahvítan líkamann. Það er frekar svalt enda hávetur- en ég læt það ekki stoppa mig. Dóttir mín týnir skeljar og sonurinn dýfir tásunni í sjóinn. "kalt mamma" kallar hann. Lífið gæti ekki verið betra- spóka sér á sólarströndinni með fjölskyldunni. Það dregur ský fyrir sólu og skyndilega verður mjög kalt. Við tökum saman og hlaupum í átt að bílnum, hlæjandi og ánægð.
Ég lít í átt til Perlunnar og hugsa með mér að það séu margir hlutir sem hægt er að gera í stað þess að fara til útlanda! Þessi ferð kostaði ekki neitt.
Það er frítt í Árbæjarsafnið á föstudögum :)
Athugasemdir
Rakst fyrir tilviljun á bloggið þitt. Þú ert virkilega skemmtilegur penni og sniðugt hjá þér að skrifa um þessa reynslu sem þorri þjóðarinnar er að lenda í eða verða fyrir á einn eða annan hátt - atvinnuleysi.
Knús-á-þig
Soffía, 29.1.2009 kl. 16:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.