orðaleikur

Ég á 2 ára son sem vill láta þurrka á sér puttana í hvert sinn sem eitthvað matarkyns snertir þá. Ég sat við matarborðið með honum ásamt dóttur minni sem er 7 ára. Sonur minn gefur frá sér hljóð og biður um að puttarnir séu þurrkaðir. Ég segi þá við hann, Oh- þú ert nú meiri pempían! Dóttir mín lítur á mig og biður mig vinsamlega um útskýringar á þessu skrýtna orði sem ég notaði. Ég útskýrði það fyrir henni hvað það þýddi og við héldum áfram að borða.

Nokkrum dögum síðar situr fjölskyldan við eldhúsborðið og gæðir sér á súkkulaðiköku. Sonurinn gefur frá sér hljóð og réttir fram puttana til þess að láta þurrka súkkulaðið sem hafði lent í lófanum. Dóttirin fylgist með og segir þá, oh- þú ert nú meiri lesbían!

Foreldrarnir hlógu svo mikið að þau gátu varla útskýrt fyrir undrandi dótturinni á háttalagi foreldra sinna, að það orðið væri reyndar pempía...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Óborganlegt!!   Fleiri svona sögur í kreppunni....endilega  Hehehe..

Kær kveðja,  Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 23.3.2009 kl. 01:13

2 identicon

Góður ...Katrín dúllan... Krista mín setti upp brúðarslörið mitt og sagði við pabba sinn " Daddy will you walk me down the island"  sem hann sagðist svo sannarlega að hann myndi gera...en ekki "down the aisle"  enn þá amk.....

Asdis (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 17:32

3 Smámynd: Soffía

  góð!

Soffía, 23.3.2009 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband