hrakfarir í hinu daglega lífi
12.4.2009 | 01:41
Ég hef lengi vel verið talinn hrakfallabálkur- á það til að rekast í ólíklegustu hluti og meiða mig. Eftir að hafa farið í hjólatúr í dag, rifjaðist það upp fyrir mér. Eitt sinn bloggaði ég um ófarir mínar á hjólinu og ætla ég að birta það hér, þar sem þetta var vont- en líka fyndið...
Ég ákvað að vera rosalega healthy og cool um daginn, og skella mér út að hjóla. Ég fór niður og pumpaði í dekkin, það gekk nú eitthvað erfiðlega þannig að hjólið skall á hliðina. Það blæddi úr puttunum mínum, þannig að auðvitað þurfti ég að fá "Dóruplástur" til að laga meiddið. Eftir að ég náði að pumpa meira í dekkin (þetta ferli tók ca. hálftíma), þá settist ég á hjólið með hjálm og alles. Ég sleppti að sjálfsögðu ekki hipp og cool heyrnatólunum mínum og Ipodinum, þannig að ég var vel sett. Þegar ég var búin að hjóla í 3 mínútur, kom ég að umferðargötu og uppgötvaði þá mér til skelfingar að það voru engar bremsur á hjólinu, þannig að ég datt á hliðina með látum. Ég spratt upp með heyrnatólinum umvafin um hálsinn og skakkan hjálm. Ég leit í kringum mig, til að tékka hvort einhver merkilegur hefði nokkuð séð þessar ófarir- því án efa var þetta frekar fyndið. Ég skrönglaðist af stað heim á leið með tárin í augunum og að drepast alls staðar. Hjólið er allt í rispum og ég er rétt að jafna mig núna, með mar og sár á ólíklegustu stöðum (Milli lappanna, í hnésbótinni- á brjóstinu!!) og út um allt. Það verður nú einhver bið í að ég fari aftur út að hjóla
Um daginn kom ég heim og var hurðin að forstofunni lokuð, ég læddist inn og opnaði hurðina hljóðlega- í von um að geta hrætt úr heimilisfólkinu líftóruna... hehe... En það fór verr en á horfðist, mér tókst að opna hurðina með því að skella henni á augað og rak því upp þvílíkt vein að það hefur örugglega heyrst upp í auðnina í Úlfarsfellinu.
Ég fór í leikhús á mánudaginn að horfa á dóttur mína dansa, þegar ég þurfti að setja litla guttann í bílinn, rak ég framtönnina í þakið á bílnum og var aum í tvo daga á eftir.
Ég veit ekki hvort ég er svona blind eða bara svona óheppin- en svona hrakfarir gerast ósjaldan í mínu lífi. Það er bara ótrúlegt að ég skuli enn vera standandi.
Athugasemdir
Hehe.. þú ert skondin :) Gleðilega páska
Soffía, 12.4.2009 kl. 11:16
Þú tryggir ekki eftir á.....sagði eitthvert tryggingarfélagið í auglýsingu.
Númi (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 11:53
Innlitskvitt - páskakveðjur
fyndin færsla - samt ekkert fyndið að lenda í þessu (kannski eftir á)
Sigrún Óskars, 12.4.2009 kl. 13:16
HA HA HA HE HE HE,þetta var sko góð saga,fínn húmor,alltaf gaman að lesa um ófarir hjá öðrum HA HA HA hugsaðu hvað þú ert heppin,þú ert á lífi,HA HA HA svo segir þú mjög skemmtilega frá,hugsaðu þér,ef þú lentir ekki í þessu,þá fengi ég enga skemmtisögu um páskana,HA HA HA mjög gott hjá þér Inga,vill fá að heyra meira,Gleðilega páska Inga,vonandi kemstu í gegnum páskana án þess að meiða þig,ÉG MEINA ÞAÐ. HA HA HA.
Jóhannes Guðnason, 12.4.2009 kl. 13:38
Þú getur huggað þig við það Inga mín að þú ert ekki ein um þessa seinheppni, ég kannast alveg við svona atvik eins og þú varst að lýsa hehe.
Erla (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 00:46
Hahaha ég hló meira að segja upphátt hérna ein með sjálfri mér! Skemmtileg frásögn hjá þér :) Vona að þú sért búin að jafna þig eftir hrakfarirnar um daginn í grænmetiskælinum!!
Ragga (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 22:25
Hæ gaman að rekast á síðuna þína, vona að það fari nú að rætast úr atvinnuleysinu hjá þér.
þessi færsla fannst mér mjög fyndin... þótt ekki hafi þetta nú verið þægilegt þegar á stóð. En fyndnast fannst mér "að reka tönnina í þakið á bílnum"! haha hvernig er það hægt?
Bestu kveðjur Ásta Kristín
Ásta Kristín Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 20:01
Inga hvernig væri að skrifa bara "skáldsögu"??
Ófarir Ingu - alveg satt:)
Þú ert snillingur, gangi þér vel
Hulda
Hulda Axelsdóttir (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 13:11
Góð hugmynd hjá Huldu - jólabókin í ár - þú ert svo góður penni
Sigrún Óskars, 21.4.2009 kl. 14:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.