er sjór góður á bragðið?

svarið við því er nei og er ég að upplifa ógeðslegt sjávarbragð uppi í mér núna, það er eins og ég hafi borðað þang í hádeginu með smá osti. Jakkidíjakk.

Ég fór út að borða með vinkonu minni í hádeginu- ánægð með að komast út meðal fólks og borða almennilegan mat í hádeginu í stað þess að borða Bónusbrauð með osti. Ég valdi mér Grænmetislasagne og gerði ráð fyrir fersku bragði þess þegar það yrði borið á borðið. En neiiiii... Það kom til mín beint úr örbylgjunni og það var ótrúlega skrýtið bragð af því- ekki svona ferskt bragð. Og Hvítlauksbrauðið- því hafði verið dýft í sjóinn til að þrífa það, það er ég viss um.

Ég vona að þetta bragð sitji ekki fast í mér eins og þetta eina skipti sem ég drakk Gammel dansk. vúúúhhhhuuuu, hrollur.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég borðaði einu sinni ostrur í Frakklandi. Ostrurnar voru OK, en sjórinn sem maður saup með var vondur og brimsaltur

Finnur Bárðarson, 19.3.2009 kl. 13:56

2 identicon

Ég fékk mér reyndar drykk um helgina sem samanstendur af sjó og vodka. Þetta drullumall kallast víst Stjáni blái og ég mæli engan veginn með því.

Axel Viðar Egilsson (IP-tala skráð) 19.3.2009 kl. 13:57

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Svo það er Stjáni Blái. Takk fyrir viðvörunina :)

Finnur Bárðarson, 19.3.2009 kl. 14:13

4 identicon

Axel...stóðstu uppi eftir Stjána bláa

Asdis Snoots (IP-tala skráð) 19.3.2009 kl. 14:28

5 Smámynd: Soffía

Núna er ég að deyja úr forvitni yfir því hvar maturinn var svona slæmur.  Þú verður að segja mér

Maður vill einmitt forðast svona staði þar sem greinilega væri fínt verkefni fyrir Gordon Ramsay's Kitchen Nightmares ...  ég er "húkked" á þeim þætti

Soffía, 19.3.2009 kl. 16:16

6 identicon

Flott síða! Þú hvíslar þessu að mér með staðinn við tækifæri

kv.Ásta

Ásta Kristín Svavarsd. (IP-tala skráð) 19.3.2009 kl. 17:56

7 identicon

Þori næstum því að veðja að þú færð eitthvað betra að borða í hádeginu í dag

Greta (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband