bingó bingó- hristi hrist...

ég fór að velta því fyrir mér hvernig pylsurnar hlóðust á magann minn í gegnum árin, svo ekki sé minnst á bingóið sem dóttir mín hefur mjög gaman af- hún sagði meira að segja vinkonu sinni frá því hvernig mamma hennar hreyfði hendurnar og þær vildu ekki hætta að hristast. Í gegnum árin hef ég talið mig hafa afsökun á að takast ekki á við þessa aukabyrði- ég hef alltaf hreyft mig eitthvað en aldrei af neinni staðfestu.

Nú hef ég enga afsökun- get alla vega ekki kennt tímaleysinu um hreyfingarleysi. Af þessum sökum hef ég ákveðið að tileinka febrúar (stuttur mánuður) hreyfingu og hreyfa mig að minnsta kosti 4-5 sinnum í viku og sleppa súkkulaðinu á meðan. 

Vonandi næ ég með þessu móti að minnka pullurnar og bingóið...

Adios

WeightLossCartoon1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yes we can!!  Baráttukveðjur

Lilja (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 10:58

2 identicon

Ha ha, fyndnar :)

Ásdís (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 18:02

3 identicon

gangi þér vel í febrúar..við hjónakornin erum búin að vera í hollustu átaki með mataræðið og erum að klára viku 5 með hollustu (fyrir utan saumóinn í gærkvöldi) þetta er ekki svo erfitt:-)

Anna Björnsd (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband