maðurinn í jakkafötunum
18.2.2009 | 10:51
" bless elskan mín, ég er farinn í vinnuna"!, kallar maðurinn í svörtum jakkafötum og með bláa bindið sem hann fékk í jólagjöf - þetta með mynstrinu. Hann sest upp í bílinn og keyrir í burtu. Klukkan er tæplega átta á mánudagsmorgni og umferðin er mjög þétt. Hann keyrir niður Sæbrautina í átt að Borgartúninu, raulandi lag sem hann heyrði daginn áður. Hann kveikir á útvarpinu og hlustar á fréttir:"atvinnuleysi hefur aldrei mælst jafnhátt á höfuðborgarsvæðinu"... Ohhhh segir hann og slekkur á útvarpinu, hann nennir ekki að hlusta á þetta enn eina ferðina. Það er samt svo skrýtið, hann skammast sín svo mikið fyrir þetta- svo mikið að hann þorir ekki að segja konunni sinni fréttirnar. Hann snýr bílnum við og keyrir heim.
Heima eru ljósin slökkt, hann er vanur að hafa þau þannig þegar hann er heima. Hann opnar útidyrahurðina, fer úr skónum og fötunum og leggst í rúmið.
venjulegur dagur í lífi atvinnuleysingja
16.2.2009 | 22:37
7.15 vakna til að koma fjölskyldunni úr húsi
7.55 hugsa um að fara á fætur og drífa sig í ræktina
8.00 fer aftur að sofa
10.00-10.30 vakna og dröslast fram úr rúminu
10.33 íhuga að fara í ræktina
10.40 skoða mbl, ráðningasíður, póstinn og bloggið
11.00 hádegis/morgunmatur- eitthvað létt, á meðan mbl.,ráðningasíðurnar, pósturinn og bloggið er skoðað
11.10 tala í símann
11.30 íhuga að fara í ræktina
11.32 tala í símann (einhvern verður maður að tala við)
12.00 yessss, kominn hádegismatur, reyni að finna mat í ísskápnum sem er frekar tómur- eitthvað hollt en gríp í þurrt brauð sem verður að rista svo það sé ætt
12.20 íhuga að fara í ræktina
12.22 náttfötin lögð á rúmið og farið í föt, greitt hárið og skellt smá málningu í framan
12.40 tala í símann
13.00 íhuga að fara í ræktina
13.02 horfa á sjónvarpið
14.30 fer í ræktina
16.00 kem við í Bónus á leiðinni heim til að bæta á matarbirgðir
16.30 fjölskyldan komin heim...
Það eru samt ekki allir dagar svona svo það sé á hreinu.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
frábær lausn!!
16.2.2009 | 12:13
Ég hélt því fram í byrjun janúar að atvinnulausir yrðu um 15þúsund í byrjun janúar og sú spá hefur ræst. Þetta á væntanlega eftir að versna þegar fram líða stundir. Ég las það í Fréttablaðinu að atvinnulaus mætti vinna sér inn rúmlega 50 þúsund á mánuði án þess að bætur skerðist. Það er gott að vita af því ef manni byðist skyndilega vinna, þá gæti maður beðið um 50 þúsund í laun á mánuði. Atvinnurekandinn yrði nú ánægður með það :)
Til þess að koma á auknum kaupmætti í þjóðfélaginu, þarf að skapa atvinnu og það er ekki gert nema fólk lifi við betri kjör. Mín tillaga er sú að ríkið nýti þessar 15.199 manneskjur til að gera eitthvað sniðugt fyrir þjóðfélagið og greiði þeim aukalega 50 þúsund krónur á mánuði. Ég er alveg til í að vinna nokkra tíma í viku- slá bletti, planta trjám, mála og fleira. Þannig mun kaupmáttur aukast og fyrr en varir verður enginn atvinnulaus lengur. Þetta gæti borgað sig til lengri tíma!
Kveðja frá atvinnuleysingjanum....
Yfir 15 þúsund á atvinnuleysisskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Draumar eru góðir..
15.2.2009 | 19:35
Mig dreymdi í nótt að ég væri að fara til útlanda- til Ítalíu ásamt nokkrum stelpum. Ég hafði mestar áhyggjur af því að hafa gleymt sundfötunum heima og hvort ég ætlaði að taka með mér stóra tösku eða litla tösku. Það var rosalega gaman, ég fór á kaffihús og í búðir og hafði áhyggjur af því hvort ég ætti að nota 20 í sólarvörn eða 30.
Þegar ég vaknaði var ég mjög ánægð að hafa upplifað góða utanlandsferð án þess að eyða krónu!! Ég mæli með þessu ef maður á engan pening. Þetta gæti nú verið góð viðskiptahugmynd að hanna svona tæki sem gerir heilli fjölskyldu kleift að fara saman í ferðalag og skapa minningar án þess hreinlega að fara þangað. Jáh, bara að ég væri uppfinningamaður...
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Natural talent..
15.2.2009 | 00:03
Ég hef aldrei verið góð að syngja- þó mér hafi stundum fundist það. Þegar ég byrja að syngja í bílnum biðja börnin mig alltaf um að hætta og ætti það að vera merki um lélega söngrödd. Á þessum tíma er verið að velja framlag Íslands í Eurovision, American Idol byrjar í sjónvarpinu og nú íslenska Idolið. Margir hafa það sem þarf - aðrir ekki. Margir eru eins og ég - telja sig vera hæfileikaríka, en fá blákalt mat dómara um hæfileikaleysi á þessu sviði.
Ég hef heldur aldrei verið góður dansari- þó mér hafi stundum fundist það. Þegar ég horfi á dansara og söngvara vildi ég óska þessa að ég gæti verið með það sem þarf. Það sem þarf til að ná árangri á þessu sviði.
Aðalatriðið er þó að þó maður sé falskur á köflum og nái ekki að "krumpa" eins og þeir bestu, þá getur maður sungið bakvið lokaðar dyr og dillað sér í takt við lögin.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
hreingerning
12.2.2009 | 11:13
Þar sem spúsinn er heima í dag veikur, ákvað ég í morgun að sýna honum að ég geri nú eitthvað hérna á heimilinu þegar ég er ekki að vinna. Ég þreif veggina- tók alla sýnilega bletti og þurfti á vöðvunum mínum að halda fyrir erfiðu blettina. Þeir voru nú allir erfiðir.. Það er ótrúlegt hvað börn setja á veggina- smá krot hér og þar, matarslettur, fingraför osfrv.
Í hálftíma gekk ég um með tuskuna og Ajaxið og spreyjaði í hvívetna. Þegar ég var búin var ég nokkuð ánægð með árangurinn. Þá uppgötvaði ég það það að þar sem maðurinn minn var sofandi allan tímann á meðan á þessu stóð- mun hann örugglega ekki taka eftir hreinu veggjunum, horfa á mig og segja- oh hvað er ljúft líf að vera ekki að vinna !!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Pay it forward
11.2.2009 | 00:29
Það er eitt sem ég sé eftir að hafa ekki keypt mér í góðærinu þarna um árið - og það eru skíði. Ég á Völke skíði frá 1991 sem móðir mín keypti handa mér á útsölu í Markinu. Þau voru flott þá- með neongrænum, bleikum og gulum eldingum. Svo átti ég stafi í stíl og skórnir voru gamlir skór frá bróður mínum. Ég var svo flott og hipp þá. Þegar ég fór svo á skíði í dag sá ég að þetta er ekki alveg í tísku núna. Skíðin eru öðruvísi í laginu og þau eru minni. Já ég veit- það á ekki að skipta neinu máli hvernig skíðum maður er á- en samt. Ég keypti mér lyftukort fyrir 2000 krónur, þegar ég fór svo heim um 5 leytið- lét ég ungan strák hafa kortið svo hann þyrfti ekki að kaupa sér nýtt. Þannig sparaði ég pening fyrir hann!
Við getum nefnilega öll hjálpast að. Það eru til aðrar leiðir en að gefa fötin sín í Rauða Krossinn. Um daginn lagði ég bílnum niðri í bæ og borgaði í stöðumæli- fékk svona miða til að setja í gluggann. Þegar ég svo kom tilbaka sá ég að ég átti ónýttan hálftíma. Í stað þess að henda miðanum, setti ég hann í raufina á bílastæðapeningakassanum (veit ekki alveg hvað þetta heitir) svo að næsti maður gæti hugsanlega notað þessar 30 mínútur og þannig sparað pening.
Ég hef stundum séð þetta í Danmörku, þá er búið að setja skiptimiða á áberandi stað hjá strætóplaninu við stoppustöðvarnar og einnig er stundum búið að leggja klippikort ofan á stimpilkassann hjá lestinni. Tökum Dani til fyrirmyndar, hjálpum hvort öðru!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Forstjóri Landsvirkjunar
9.2.2009 | 20:42
Mottóið mitt í lífinu hefur lengi verið :"þú verður að reyna, annars gerist það ekki". Fyrir jólin var auglýst staða forstjóra Landsvirkjunar. Ég sótti að sjálfsögðu um það þar sem ég fyllti allar hæfniskröfur- nema kannski að ég er ekki í neinum stjórnmálaflokki... Það voru aðeins 54 umsækjendur og var ég nokkuð vongóð enda sjarmatröll mikið og með óendanlega mikinn áhuga á virkjanaframkvæmdum og orku (eða you know... þannig).. Svo fékk ég áfallið í pósti. Ég fékk bréf frá Landsvirkjun þar sem mér var þakkað fyrir að sækja um en vegna aðstæðna í þjóðfélaginu hefði Friðrik Sófason ákveðið að sitja aðeins lengur. Það er alla vega ekki hægt að segja að ég hafi ekki fengið vinnuna vegna vanhæfni eða af því að ég var kona! Neibbs... En þetta var vissulega áfall- ég var meira að segja búin að athuga hve lengi ég væri að keyra í vinnuna- já, það voru 14 mínútur í meðalumferð en 23 mínútur í mikilli. Ég hefði þannig alltaf mætt á réttum tíma í vinnuna. Svo var ég búin að koma auga á svona skjalatösku sem er víst vinsæl meðal forstjóra, sem mig langaði til að festa kaup á.
Bráðum munu stöður bankastjóra Landsbankans, Glitnis og Kaupþings verða auglýstar og mun ég að sjálfsögðu vera þar fremst í flokki og sækja um- því eins og ég segi- ég verð að reyna, annars gerist það ekki.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Atvinnutækifæri...
8.2.2009 | 20:54
Ég hef verið að skoða atvinnutækifæri þar sem lítið er um atvinnu. Aðalatriðið er að vera frumlegur í hugsun. Það getur oft reynst erfitt en skemmtilegt líka.
Ég var með Baguette í matinn á fimmtudaginn og 7 ára dóttir mín hrósaði mér í hvarvetna hvað ég væri nú svakalega góð í að búa til svona góða langloku. Svo sagði hún alvarlega eftir að hafa horft út í loftið í smá stund; mamma, við tölum bara við afa og athugum hvort hann eigi spýtur. Svo getur hann örugglega hjálpað okkur að smíða kofa- sem er akkúrat pláss fyrir þig í. Svo getum við farið með kofann niður í bæ og þú getur selt svona baguette!
Jáh, maður deyr ekki ráðalaus- þó maður sé aðeins 7 ára!
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Typpalykt af þessu öllu saman...
7.2.2009 | 10:51
Loksins loksins er fólk að átta sig á þessu! Typpalykt á vinnustöðum getur verið yfirþyrmandi og hef ég reynsluna á því. Ég er enginn sérstakur femínisti en það er einstaklega erfitt að vera kona í þessu umhverfi. Konur og karlar eru mismunandi þenkjandi og ber að hafa vinnustaði blandaða. Ef typpalyktin er sú eina sem ber ábyrgð- þá er fjandinn laus.
Annars er ég laus, ef það vantar einhvern án testósteróns á vinnustaðinn þinn :)
Öld testósterónsins lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)